Miðaldra í smá kaffikrísu

Miðaldra í smá kaffikrísu

Það er fátt sem veitir mér jafn mikla gleði og góður sterkur kaffibolli strax á morgnanna. Já, ég veit, líf mitt er frekar sorglegt ! En það er þessi nærandi morgun venja sem frískar upp á heilann minn fyrir verkefni dagsins sem ég hef haldið svo fast í.

Reyndar kannski eins og þú, nýti ég mér kaffi til að fá orkuskot til þess eitt að halda út daginn. Undarlegt, nei ég held að við séum öll þarna. Við fáum okkur kaffi til þess að fá tímabunda orku. 

Miðaldra með hormónaójafnvægi

Það rann upp fyrir mér einn daginn að ég var orðin miðaldra, eins yndislegt og það er ! Þannig að þessi sterki yndislegi morgun kaffibolli var kannski ekki það besta fyrir hormónana mína sem eru í svona pínu ójafnvægi þessa dagana. Reyndar var ég líka að fá mér nokkra kaffibolla yfir daginn, sem hafa auðvitað líka áhrif. 

Ég fann út að þetta var kannski ekki það skynsamlegast sem ég gat gefið mér, svona í morgunsárið. Ég áttaði mig á því að kaffið var að hafa meiri áhrif á mig heldur en ég gerði mér grein fyrir hvað varðar orku, vellíðan og streitu.

En hvernig í ósköpum get ég farið að sleppa kaffibollanum ! nei í alvöru, þá get ég nú alveg sleppt öllum verkefnum dagsins, pakkað saman og dregið sængin upp fyrir haus. Enda með hreinskilni sagt get ég alveg lofað þér því að ég væri mjög líklega ekki skemmtilegur félagsskapur án kaffibollans! 

Þannig var að ég var komin í mjög náið samband við kaffibollan á þessum tíma, Já ég var komin í haltu mér slepptu mér samband við bollann.  Suma daga reyndi ég að sleppa bollanum með viðeigandi sorg og geðillsku og hinn daginn gat ég sannfært heilann minn með ýmsir konar blekkingum eins og  “tja Jana mín fáðu þér einn bolla án eða að þetta hefur engin áhrif á þig eða þína hormóna” Jeb en allt í góðu. 

Virkni kaffi(Functional) í staðin fyrir venjulegt kaffi

Í raun langaði mig ekkert að sleppa kaffinu en líkaminn minn var ekki alveg á því. Mig langaði samt að byrja daginn betur og leyfa hormónunum mínum að blómstra. Sérstaklega í ljósi þess að þeir minnka með tilheyrandi aldur og með tilheyrandi óþægindum.

Þannig var ég fór aðeins á stúfana, já þannig var það. Ég fór auðvitað á internetið en ekki hvað, las mér til og fann út að kaffi heimurinn er að breytast ! Hvernig fór það fram hjá mér. Já segðu ! Ég fann út að allir væru að tala um Functional kaffi (íslensk þýðing hagnýtt kaffi) Ég nota virkni kaffi. Ef þú veist um góða þýðingu láttu mig endilega vita.

En hvað í ósköpunum er functional kaffi, heyri ég þig spyrja? Já sko, það er kaffið sem þú þekkir og elskar, en með bættri blöndu af aðlögunarefnum (Adaptogens) eins og t.d sveppum, stundum próteini, stundum jurtum eins og CBD og Túrmerik, og jafnvel stundum Probiotics (Bakteríur í formi jurta). Jafnvel getur Functional kaffi verið alveg tilbúið þegar þú kaupir þér poka, þá er búið að bæta við Adaptogens eins og t.d sveppum við kaffið í brennslu ferlinu. Það finnst mér hrikalega þægilegt.

Eina sem þú gerir er að kaupa poka af sveppa kaffi og býrð þér svo til yndislegan kaffibolla sem afstýrir orku hruni og stuðlar að einbeitingu og jafnvel betri ró, ásamt því að kaffið er sýru minna en venjulegt kaffi. 

Á þessu brölti mínu á netinu fór ég að sýna þessu nýja kaffi formi mikinn áhuga. Ég hafði stundum sett kókosolíu í venjulega kaffið mitt, en ekkert gert neitt meira með það.

Það var ekki fyrr en ég var stödd á vörusýningu með lífrænar vörur í þýskalandi núna í febrúar að ég fann framleiðanda sem hefur sett sveppi út í kaffið, þá í brennslu ferlinu. 

Þetta kaffi er lífrænt sveppa kaffi. Það sem mig langar að gera er að segja þér pínu frá þessu kaffi, bara af því að þetta er geggjað kaffi. Með góðri virkni og ekki skemmir að það er svo bragð gott. 

Hvað er sveppa kaffi

Sveppakaffi er næsta kynslóð af kaffi. Einstakt sýrulítið “Functional” sveppakaffi, sem bragðast eins vel og uppáhalds kaffibollinn þinn og skaðar ekki heilsuna þína. Já það var einmitt það sem ég stoppaði við þegar ég var að kynnast þessu kaffi. Get ég virkilega fengið mér gott kaffi án aukaverkana !

Sveppirnir virka sem svokallaðir adaptogens og geta aðstoðað við að draga úr streituviðbrögðum koffínsíns og aukaverkunum sem fylgja koffínneyslu. 

Mig langar að segja þér að sveppinir er aðlögunarefni ( Adaptogen planta) sem hjálpa til við að styðja við varnarkerfi líkamans, draga úr orkuleysi og kemur í veg fyrir síþreytu, ásamt því að hjálpa líkamanum að takast á við streitu og álag. Sveppir styðja við að takast betur á við streitu, álag og kvíða. Sveppir styðja líka við jafnvægi fyrir hormónaframleiðslu líkamans.

Adaptogen vinna vel að því að virkja líkamsstarfssemina án aukaverkana. Sveppirnir eru ekki meðferð eða til að lækna en geta þeirra er einstök til þess að styðja við náttúrulegt varnarkerfi líkamans gegn álagi daglegs lífs.

Sveppirnir stuðla að minni sýrustigi í kaffinu. Kaffið fer gegnum eftir meðferð til þess að hækka ph gildi kaffisins úr 5.0 í um 6,3. Venjulegt kaffi er frá 4,3 til 5 í sýrustigi.

Ra hygge sveppa kaffið sem ég elska svo mikið

Ra hygge er  kaffi með lágu sýrustigi, er eina heilbauna sveppa kaffið sem er lífrænt. Kaffið er unnið frá smá bændum í Perú sem hugsa vel um umhverfið og fólkið sem ræktar kaffið. Rå Hygge notar lífrænt sveppaþykkni sem hefur góð áhrif á líkamann í langan tíma, stuðla að jafnvægi  og kemur í veg fyrir jitters(skjálfta) áhrif frá kaffinu. Sjá meira hér um kaffið naeandilif.is

Í dag nýt ég þess að fá mér góða kaffibolla án þess að kaffið hafi áhrif á mig. Ég hef líka minnkað kaffi neysluna. Núna drekka ég sirka 2 bolla á dag og fíla það í botn. Mér finnst bara svo geggjað að fá mér gott kaffi á morgnanna. Njóta ilmsins og bragðsins.

Ég er líka dugleg að gera mér allskonar kaffidrykki með allskonar jurtum, jurtamjólk og líka ískaffi. Það sem veitir mér líka vellíðan er að vita að ég er að drekka gott kaffi án aukaefna.

Það sem mig langar að segja þér að allir sem elska kaffi ættu að geta drukkið kaffi án þess að finna fyrir aukaverkunum, auk þess að fá betri kaffi upplifun. Njóta þess að fá sér kaffi.

Langar þig að vita meira um sveppa kaffi og jafnvel fá þér poka ?Kíktu á heimasíðuna: naerandilif.is og fáðu þér poka 

Kærleiks kveðja

Jana

Aftur í pistla