Lífsorkudjús

Lífsorkudjús

 

Nú þegar tekur að hausta þá er ágætt aðeins að “boosta” ónæmiskerfið upp og endurnæra kroppinn. Ég hef undanfarin ár verið hrifin að fá mér djúsa eða þeyting svona með minni daglegri næringarþörf. Einn djús hefur reynst mér ákaflega vel en það er Lífsorku Djúsinn minn. Ég nýti mér hann alveg helling. 

Mér finnst agalega gott að drekka hann þegar ég hef kannski verið að fá aðeins of mikið af brauði eða jafnvel aðeins of mikið af sykri. Já Já við erum öll einhvern tímann þarna. Munið bara að við dæmum engan og hvað þá okkur sjálf. ! Langaði bara að nefna að ég elska brauð ! Til þess að viðhalda mínu orkuflæði er brauð kannski ekki það allra besta fyrir mig. Brauðátið mitt er kannski tilefni í annan pistil ! Hver veit.

Þannig að ég fæ mér þennan djús til að rétta mig af ef það má orðað það þannig. Gefa meltingu pínu hvíld. Líka fæ ég mér hann t.d ef ég hef verið undir mikilli streitu og álagi, þá kikkar hann vel inn. 

Ónæmiskerfið þarf stundum meira stuðning

Stundum þegar ónæmiskerfið mitt gefur eftir við að verja mig frá allskonar pestum og ég fæ kannski eitt stykki flensu eða kvef hef ég nýtt mér líforku djúsin við að endurnæra mig. Finnst hann alveg frábær þar. 

Síðan er ég stundum bara með drykkinn með mér þegar mig vantar ákveðið “boost” inn í daginn. Ég er stundum að drekka hann síðdegis, finnst hann henta alltaf vel þá. Þessi drykkur er bara alveg frábær. Stúttfullur af næringu. Hann er afeitrandi og styður við meltingarkerfið okkar.

Lífænt og íslenskt

Drykkurinn samanstendur af grænmeti og svo er epli líka. Það sem er líka svo gaman svona á haustinn þá höfum við aðgang að meira úrval af grænmeti þá íslensku. T.d keypti ég um daginn íslenskt sellerí sem er guðdómlegt ! Líka hef ég keypt íslenskar gulrætur og auðvitað gúrkan sem er alltaf til á öllum árstíðum hér á íslandi. 

Það sem er mikilvægt þegar þú ætlar að gera þér þennan drykk er kaupa lífrænt hráefni. Af  hverju, jú þá sleppuru við allskonar eiturefni og líkaminn nær betur að vinna úr þessu öllu.

Trefjar eða ekki trefjar

Það er líka gaman að skoða t.d hvort er betra að gera drykkinn í djúsvél og taka þá allar trefjar í burtu eða einfaldlega gera hann í blandara með öllu hráefninu. Fyrir mig er í í bæði. Stundum finnst mér bara hrikalega mikilvægt að fá mér trefjarnar með og stundum tek ég það frá. Það fer bara hvað ég er að fást við hverju sinni. Endilega prófa'u þig áfram.

Ég á t.d ekki djúsvél en nota blandara og svo sía ég hratið frá með síupoka. Finnst það langbest. Síðan nota ég stundum hratið í hrökkkex.

Kíkjum á þessi dýrð…

Lífsorku Djús uppskrift

  • 2stk gulrætur
  • 1stk rauðrófa (lítil)
  • 1stk (lauf) hvítlaukur
  • 2 stilkar sellerí
  • 1 stk epli (meðalstórt)
  • Lúka af grænkál/spínat
  • Smá búti engifer
  • 1/3 sítróna, safi

Allt hráefni skolað með vatni. Ef þú ert ekki með lífrænt. Afhýddu þá eplið, engiferið og rauðrófuna. Nóg að skola annað. Afhýddu hvítlaukinn. Gott að skera í bita.

Allt sett í blandara eða djúsvél. Ef þú setur í blandara og ætlar að taka hratið frá þá getur þú notað síupoka. Ekki gleyma að nota hratið í næsta hrökkkexið.

Pínu ponsu um hráefnið

Rauðrófur: Bætir súrefnisupptöku í líkamanum og eru trefjaríkar. Þær innihalda steinefni og vítamín eins og C og B vítamín Fólat. Rauðrófur eru háar í sykri og kolvetnum og henta því vel fyrir t.d átök eins og hreyfingu og göngur. 


  • Gulrætur: Í gulrótum er litarefnið karó­tín sem umbreytist í A vítamín. Gulrótin er ríka af steinefnum eins kalíum og inniheldur C vítamín.
  • Spínat: Dökkt blaðgrænmeti eins og spínat er mjög ríkt af járni en hins vegar er Oxalsýra í spínati sem hindrar upptöku á járni.  Þannig að hafa C-vítamín með þegar þú borðar spínat er mjög gott. T.d sítrónusafa. Spínat er ríkt af andoxunarefnum, A-vítamíni, C-vítamíni, K-vítamíni, magnesíum og fólínsýru, B-2 og B-6 og E - vítamíni. Í grænkáli er minna Oxalsýra. Ég nota það líka, þá í staðin fyrir spínat.
  • Sellerí: Blöðin innihalda A-vítamín en stikarnir innihalda B-1, B-2, B-6 og C-vítamíni og mikið af kalíum, magnesíum, járni, fosfór, natríum, fólinsýru og kalki. Einnig er sellerí ríkt af trefjum. 
  • Hvítlaukur: Ríkur af steinefnum eins sinki og kalsíum. Líka inniheldur hvítlaukur E-vítamín. Auk þess inniheldur hvítlaukur efnasamband sem er sveppa og bakteríudrepandi.  Einnig inniheldur hvítlaukur Selen sem er snefilsteinefni. Selen er mikilvægt fyrir briskirtil.
  • Epli: Rík af trefjum, C- vítamíni og járni. Epli er ávöxtur og er því með ávaxtasykri.Epli innihalda „pektín“ sem eru trefjar sem eru vatnsleysanleg. En Pektín styður við að fækka slæmum bakteríum í þörmunum og þannig geta góðu bakteríurnar fjölgað sér. 
  • Engifer: Bólgueyðandi og sótthreinsandi. Gingerol í engifer getur framleitt andoxunarefni ensím þegar það fer inn í líkamann.

Njóttu haustins

Jana

 

Aftur í pistla